Gefðu þér smá stund til þess að lesa þetta: Þetta gæti bjargað lífi!
Bara á eina stofnun - héraðssjúkrahúsið í Vestfold í Noregi - koma að
meðaltali 5 sjúklingar á dag með bráða heilablæðingu.
Heilablæðing ( líka nefnd Slag eða Heilablóðfall ) er í reynd þriðja
helsta dánarorsök í Noregi og fellir fólk á öllum aldri - þótt aldraðir
séu þar í meirihluta - Taktu nú eftir:
Það var veisla og Inga hrasaði og datt. Hún fullvissaði alla um, að allt
væri í lagi með sig (þau buðu henni að hringja í lækni ) hún hefði bara
hrasað um stein af því að hún væri í nýjum skóm. Henni var hjálpað við að
laga sig til og var færður matur á nýjan disk - og þrátt fyrir að hún
virtist svolítið óstyrk, hélt Inga áfram að skemmta sér það sem eftir var
kvöldsins.
Maðurinn hennar hringdi seinna og sagði frá því að Inga hefði verið
flutt á spítalann og kl 6:00 um morguninn hefði hún verið dáin. Hún hafði
fengið heilablæðingu í veislunni.
Hefði fólkið vitað hvernig maður getur þekkt einkenni heilablæðingar,
væri Inga mögulega enn á lífi.....
Það tekur bara fáeinar mínútur að lesa þetta:
Taugalæknir fullyrðir að fái hann sjúkling með heilablæðingu til
meðferðar innan þriggja tíma geti hann afmáð allan skaða af völdum
áfallsins ... Að fullu og öllu !
Að hans sögn, felst lausn vandans í því að fólk geti borið kennsl á
einkennin, fengið greiningu og komið sjúklingnum undir viðeigandi
læknishendi innan þriggja tíma.
Að bera kennsl á Heilablæðingu (Slag)
-Nú segja læknar að allir geti lært að bera kennsl á heilablæðingu með
því að beita þremur einföldum ráðum:
1. * Biðja manneskjuna að HLÆJA
2. * Biðja manneskjuna að LYFTA BÁÐUM HANDLEGGJUM
3. * Biðja manneskjuna að SEGJA EINA EINFALDA SETNINGU
(sem er í samhengi) ( t.d. ...Sólin skín í dag).
Ef viðkomandi á í erfiðleikum með eitthvert þessara atriða -
hringið þá strax í neyðarnúmerið 112 og lýsið einkennunum.
Hjartasérfræðingur segir að ef allir sem fá þennan tölvupóst, senda hann
áfram á 10 aðra, getir þú að minnsta kosti reiknað með því að einu
mannslífi verði bjargað.
LÁTTU EKKI ÞITT EFTIR LIGGJA - DEILDU ÞESSU MEÐ EINS MÖRGUM OG ÞÚ GETUR